17.12.2007 | 01:40
Baka baka...
Hnoðaði í smákökur í gær, eldgömul uppskrift, sem ég ólst upp við hjá mömmu, hver einustu jól sem ég man eftir, og ég tók upp þegar ég fór að búa .Þetta heita Vanillusmákökur, eftir að hafa hnoðað, rúllar maður upp í pylsu, geymir til næsta dags, sker þá niður, penslar með eggi, og setur svo skrautsykur á, (mikil handavinna), en namminammi góðar.
Svo í dag fór ég að baka,minn kall vaknaði upp við lyktina, fór í stuð,og var brátt farinn að hnoða í piparkökur.
Svo ég forðaði mér úr eldhúsinu til að leyfa honum að hafa sitt speis. Nammi,mjög góðar piparkökur sem fæddust hjá honum, þær bestu sem ég hef smakkað. Hef nú oft bakað piparkökur, en aldrei með kaffi í, eins og hann vildi, vá,góðar.
Hér áður fyrr bakaði maður 8-10 sortir af smákökum fyrir hver jól. Plús svo allar terturnar. En eftir skilnað nr.2, og við Ronni fórum að búa saman (barnlaus), jú ég bakaði, en ekkert var étið (ég er ekki fyrir smákökur eða tertur , og greinilega Ronni ekki hrifinn af mínum bakstri), þá varð ég að henda öllum bakstri í febrúar, svo ég hét því þá, að baka ekki framar.
En í ár,þá ákvað ég að, sníkja glerkrukkur hér og þar, líma sérvettur utanum, setja smákökur ofaní,og gefa í jólagjafir, svo ég neyddist til að baka, svo hrærivélin og vigtin voru neydd upp úr kompunni..
Já elskurnar mínar, þið fáið smákökur í jólagjöf.
Svo í dag hefur verið hér jólastemming, kveikt á kertaljósum og ilmandi bökunarlykt.
Take care.
Athugasemdir
Flott hjá ykkur að taka ykkur saman og baka, yndislegt að eiga svona stund saman
Maddý (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 08:27
Vonandi fæ ég krukku, ég er ekkert farin að baka
Höfuðið (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 17:27
Ég náði, náði, náði, úff er mikið létt.
Höfuðið (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 19:09
ummm nammi namm væri sko alveg til í svona vanilusmákökur
en já það styttist í jólin hí hí eg er sko búin að öllu kláraði allt í dag víví
á bara eftir að senda þetta frá mer.bið að heilsa
kv magga
magga (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 20:26
Já Svana mikið var bakað í "den" og það var bara gaman. En núna er maður latari við þetta, en góð hugmynd hjá þér að gefa smákökur ! Er búið að vera svo bilað að gera í bankanum að ég hef ekkert bakað - ég fæ mér kannski einhverjar kökur í bakaríinu á morgun - bara svona til þess að eiga eitthvað til.......En helgin á eftir að fara í tiltekt og einhverjar meiri skreytingar og svo koma bara blessuð jólin og allt verður í góðu lagi.
Var að vinna í dag frá klukkan átta í morgun til kl.19.00 í kvöld og var gott að koma heim og fá fiskrétt hjá bóndanum og vita það að maður á frí næstu 5. daga !!!! Himneskt - mikið ætla ég að vera löt og vafra um á náttfötunum á jóladaginn og á annan í jólum.......
á milli ferða út með Dalí minn
En bara - gleðileg jól og njótið jólanna, friður og kærleikur veri með ykkur.
Jólakveðjur í bæinn. Magga
Hulda Margrét Traustadóttir, 21.12.2007 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.