Helgarfrí.

Á síðasta föstudag byrjaði minn kall loksins í helgarfríi, en það eru 6 vikur síðan hann fékk síðast frí, laugardag og sunnudag.......Til að lengja fríið, brunaði ég vestur á Jökulsárlón og sótti minn kall, en hann fékk að hætta kl.5 í staðinn fyrir kl.7.

Við hentumst hingað heim, tróðum drasli í bílinn og brunuðum svo upp í bústað í Lóni.

 

Það er Paradís að vera þarna upp frá í bústaðnum, og reynum við að fara þangað eins oft og hægt er, enda bara rétt um hálftíma keyrsla héðan frá Höfn.

 

Helgin leið í rólegheitum, gsm-símar á silent, og hefði varla þurft þess, því símasamband mjög slitrótt, og varla inni klukkutímum saman, sem betur fer.

 

Við rifum okkur upp fyrir 8 í morgun til að horfa á leikinn, vorum stolt af okkar strákum, en samt leið yfir því,  hvað þeir létu Frakkana valta yfir sig, því þeir gátu betur.

 

Á morgun byrjar svo 4-daga törn hjá mínum kalli á Jökulsárlóni.

 

Baltó, okkar hundur, lék við hvern sinn fingur í sveitasælunni, en enn leitar hann að Tígli, hundinum okkar, sem við því miður þurftum að svæfa 14.ágúst.   Mikið búið að gráta, bæði hjá mönnum og hundi.

 

Take care.

 

Ronni and Baltó eating

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Knús á þig vinkona ...

Maddý (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 23:37

2 identicon

Gott að þið gátuð notið ykkar þarna í fegurðinni. Ástarkveðjur.

Höfuðið (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 09:18

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Samúðarkveðjur vegna Tíguls. Það er erfitt að missa dýrin sín. Kveðja og knús.

Vilborg Traustadóttir, 25.8.2008 kl. 12:16

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ekki varð ég nú var við þetta GZM sambandsleyzi hjá ykkur !

Steingrímur Helgason, 25.8.2008 kl. 21:48

5 Smámynd: Sigríður Inga Sigurjónsdóttir

Ég samhryggist vegna Tíguls. Rosalega er Baltó kyssilegur. Kveðja að vestan í rigningunni.

Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 25.8.2008 kl. 22:01

6 Smámynd: Brynja skordal

Mikið var gott að þið gátuð slappað smá af í bústaðnum En æ samhryggist með Tígul ykkar En hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 26.8.2008 kl. 21:34

7 Smámynd: Hrefna Gissurardóttir

Takk fyrir innlitið Svanhildur mín og knús til þín líka. Hilsen úr hólminum, Hrefna

Hrefna Gissurardóttir , 29.8.2008 kl. 16:46

8 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Samúðarkveðjur vegna Tíguls,hafðu það gott ljúfust.

Magnús Paul Korntop, 30.8.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband